Skítur hvað ég er algjörlega komin með ógeð á öllu þessu öfga
feminista þrugli hjá gjörsamlega öllum.
Allir eru með brotið stolt og allir eru að koma illa fram
við alla. Allar auglýsingar eru að særa blygðunarkenndir þeirra sem
gives a shit... Þannig að ef ég fer ekki að gráta útaf þessari
blessaðri kókzero auglýsingu þá er ég ein af þeim sem eyðileggur
tækifæra annara kvenna til að geta verið með í silfri eigils sem by
the way ætti að leggja niður ef það eru ekki allavega helmingur
viðmælenda sem eru kvenkyns...
Núna eru meira að segja karlarnir farnir að taka þetta inná sig,
kannski ekkert skrítið þannig séð. En það skemmir fyrir mér
persónulega sem eeelska að gera grín körlum jafnt og mér finnst
gaman að gera grín að því að vera kerling. Ég hef reyndar alltaf
verið frekar mikil karlremba, núna get ég samt ekki sagt að ég sé
með karla syndrom þeas að ég geti bara gert einn hlut í einu
og að ég reki við og ropa eins versti karlmaður. Því núna eru
karlarnir orðnir nefinlega ansi varir um sig við svona kommentum
frá konum.
Ég segi sem sagt ekki lengur að ég sé karlrembusvín og þar sem
ég er langt frá því að vera kvenremba þá er hægt að segja að ég sé
bara remba eða rembusvín, því ég er jú pínulítill sóði.
Sko mér finnst auðvitað alveg óþarfi (reyndar jafnt og fyndið)
þegar maður heyrir að kona hafi fengið ryksugu eða straujárn sem
gjöf frá annað hvort fyrirtækinu sínu eða íþrótta félagi eða
eitthvað man ekki alveg detailsið. Nei, sorry, mér finnst það
eiginlega bara fyndið...
ég rakst á eitthvað blogg frá iðunni
steinsdóttur á þessari margrómuðu truno.blog.is.
Hún segir: (quote) Í heildina eru stelpurnar
samviskusamar, duglegar, hlédrægar og standa klárar á sínu meðan
stór hluti strákanna er barnalegur, óþægur og alltaf til í að láta
álit sitt í ljósi, líka óumbeðið. Það er svo skrítið að horfa upp á
þennan mun og finna hvað stelpurnar eru miklu hæfari en um leið
víkjandi. Ég spyr mig hvort það sé innbyggt í kvenkynið að
karlkynið sé æðra? Eða er þetta afleiðing af uppeldi?
Hvað sem það er, þarf það að breytast. Það þarf að breytast svo að
okkur finnist jafn sjálfsagt að konur svari fullum hálsi eins og að
karlar geri það. (quote ends) :/
oj þér kona, ekki vildi ég að þú værir að kenna mínum sonum.
Svona tal lætur mig verða ánægðari og ánægðari að vera ein af þeim
metnaðarlausu kerlingum sem lætur kerlingar eins og þig engjast um
af frustration...
By the way það er orðið nokkuð langt síðan kerlingar fóru aðð
svara fyrir sig fullum hálsi og ekki finnst mér minna um kúgaða
karla heldur en kúgaðar kerlur. Það minnir mig á
snilldar sketch í fóstbræðrum þar sem Benedikt Erlingsson
leikur kúgaðan eiginmann Helgu Braga sem fær ekki að fara út á
barinn með félugunum. "Hún:Ætlaðir þú ekki að svæfa og ætlaðir þú
ekki að vaska upp afhverju þarf ég alltaf að vera heima.. Hann: Ég
hef oft boðist til að vera heima meðan þú skreppur eh út.. Hún: Mig
LANGAR ekki neitt að fara neitt ÚT...!!!"
Svo endar það á því að hann liggur á eldúsgólfinu grátandi yfir
að mega ekki fara út. Á endanum semja þau að hann fær að fara út
til 12 og ekki mínútu lengur.. 
sketch dagsins
